Kvikmyndakvöld í Gúttó
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
30.01.2014
kl. 13.27
„The Weight of Mountains“ mætir með nokkrar kvikmyndir á Sauðárkrók á morgun, föstudag. Sýnd verður röð stuttmynda sem kvikmyndagerðarmenn sem dvalið hafa í Neslistamiðstöð hafa gert.
Myndirnar verða sýndar í Gúttó, húsinu á bak við Sauðárkróksbakarí og hefjast sýningar kl 19:00. Hægt er að fræðast nánar um kvikmyndagerðarmennina hér.