Kvikmyndanemar FNV mynda þegar leikari dettur af baki í myndinni Hross
Árni Gunnarsson kvikmyndagerðarmaður á Sauðárkróki og nemendur hans í kvikmyndagerð við FNV vinna nú að því að gera "Á bak við tjöldin" mynd um myndina Hross eftir Benedikt Erlingsson sem verið er að taka upp í Borgarfirðinum. Ýmislegt getur farið öðruvísi en ætlað er við tökur og náðu kvikmyndanemarnir á mynd þegar Kjartan Ragnarsson leikari datt af baki og varð nærri undir þremur skjóttum gæðingum sem voru eitthvað ósáttir.
Á Facbooksíðu sína skrifar Árni Gunnarsson: „Þarna fór betur en á horfðist en það er rétt að taka fram að skjóni var búinn að prjóna tvisvar áður en Kjartan datt. Það bara stóð maður fyrir framan tökuvélina hjá mér og var ekki alveg nógu snöggur að færa sig. Kjartan er alvöru töffari.“
Atriðið má sjá hér fyrir neðan.
http://www.youtube.com/watch?v=s8aTnNMMZWc