Kvikmyndasmiðja í Skagafirði
Vinnumálastofnun Norðurlands vestra hefur gert samkomulag við Skottu kvikmyndafjelag um að koma á fót Kvikmyndasmiðju í Skagafirði fyrir atvinnuleitendur. Þetta er mjög spennandi verkefni og er hugmyndin að bjóða atvinnuleitendum upp á tækifæri til að kynnast kvikmyndagerð frá hinum ýmsu sjónarhornum.
Kvikmyndasmiðjan mun standa yfir í 2 mánuði og á þeim tíma munu þátttakendur fá að kynnast mismunandi aðferðum í kvikmyndagerð og fá tækifæri til að vinna að gerð kvikmyndar frá upphafi hennar til enda. Í lokin er áætlað að hópurinn hafi lokið við gerð á einni stuttmynd og öðlast þekkingu á þeirri tækni og aðferðum sem notuð er við stuttmyndagerð.
Mikilvægi skapandi greina hefur verið töluvert í umræðunni að undanförnu og hefur Vinnumálastofnun sett þetta verkefni af stað til þess m.a. að verkja athygli atvinnuleitenda á þeim möguleikum sem í þeim geta falist.
Vinnumarkaðsráð Vinnumálastofnunar Norðurlands vestra kostar verkefnið, en Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra sér um skipulag í samstarfi við Árna Gunnarsson eiganda Skottu.
Áhugasamir atvinnuleitendur á Norðurlandi vestra er hvattir til að hafa samand við Vinnumálastofnun til að skrá sig í Kvikmyndasmiðjuna. Skráning fer fram með því að senda póst á nordurland.vestra@vmst.is. Vinsamlega takið fram nafn, kennitölu, heimilisfang og símanúmar, en einnig er gott en ekki nauðsynlegt að senda ferilskrá með í viðhengi.
Athugið að takmarka þarf fjölda þátttakenda og mun Vinnumálastofnun velja úr innsendum umsóknum.