Kviknaði í vatnsvél
Aðfaranótt sl. föstudags kviknaði í vatnsvél í eigu Farskólans á Sauðárkróki sem staðsettur er á efri hæð hússins við Faxatorg 1 en í því húsi fer fjölþætt starfsemi fram. M.a. er starfsstöð SSNV í húsinu en svo vildi til að tvær konur sem voru að vinna fram á nótt urðu eldsins varar og náðu að slökkva hann.
Eftir því sem Feykir kemst næst hafa fundist gallar í vatnsvélum af þessari gerð og búið að innkalla þær. Bryndís Þráinsdóttir framkvæmdastjóri Farskólans segir að vélin sé ónýt en ekkert sjái á vegg eða innréttingu. -Gárungar sögðu að það mætti þakka Evrópusambandinu fyrir að ekki fór ver á Faxatorginu en konurnar tvær voru að leggja síðustu hönd á IPA umsókn til Evrópusambandsins, segir Bryndís.