Kvöldverður hjá listamiðstöðinni

Það er alltaf nóg um að vera hjá Nes-listamiðstöð á Skagaströnd. Á sunnudaginn kemur verður svokallður „pot luck dinner“ þar sem allar koma með eitthvað og leggja til á hlaðborðið ásamt drykkjum fyrir sig og sína.

Þá verður einnig listamannaspjall og er viðburðurinn haldinn í Kvennaskólanum á Blönduósi, í boði Textílseturs Íslands, en samstarf er milli setursins og listamiðstöðvarinnar í sumar.

Miðvikudaginn 10. júlí verður svo listamannaspjall og laugardaginn 20. júlí verður opið hús.

Fleiri fréttir