Kynbótasýning hrossa á Hvammstanga
Fyrirhuguð er kynbótasýning hrossa á Hvammstanga dagana 25. og 26. maí nk. og yfirlitssýning á föstudegi. Þetta getur þó breyst ef skráningar verða ekki í samræmi við áætlanir.
Þeim sem ætla að skrá hross er bent á að senda skráningar á tölvupósti á rhs@bondi.is , en einnig má hringja í síma 451 -2602 en síðasti skráningardagur er föstudagurinn 20. maí.
Við skráningu þurfa að koma fram upplýsingar um hrossið, fullnaðardómur eða bara bygging eða hæfileikar, nafn og kennitala sýnanda, nafn og kennitala þess sem greiðir reikning og óskir um tíma ef einhverjar eru.
Gjald er 15.000 fyrir fullnaðardóm en 10.500 ef bara annað hvort bygging eða hæfileikar. Greiðist inn á banka 307-26-2650 (kt 471101-2650) samhliða skráningu og senda kvittun á rhs@bondi.is með upplýsingum fyrir hvaða hross er verið að greiða.
Nánari upplýsingar og tímasetningar á www.rhs.is þegar nær dregur.