Kynning á hrútakosti sæðingastöðvanna 2013-2014

Nú styttist óðfluga í að ný hrútaskrá líti dagsins ljós. Að vanda verða í kjölfarið haldnir kynningafundir um land allt á vegum búnaðarsambandanna. Sauðfjárráðunautar RML munu mæta á fundina og kynna hrútakosti, ræða um ræktunarstarfið og ýmislegt fleira. Þá verður fyrirkomulag sæðinga kynnt og farið stuttlega yfir hauststarfið í sauðfjárræktinni.

Vakin er athygli á því að dagsetning fundarins á Blönduósi misritaðist í síðasta Bændablaði en hið rétta er að fundurinn verður föstudaginn 22. nóvember og hefst kl. 13:00 í „Bændahöllinni“ á Blönduósi, Húnabraut 13. Allir áhugasamir sauðfjárræktendur eru hvattir til að mæta.

Fleiri fréttir