Kynningafundir um Virkju Norðvestur- konur
Þann 8. september næstkomandi verða haldnir kynningafundir um Virkju- Norðvestur konur.
Fundirnir verða haldnir samtímis á Kaffi Krók á Sauðárkróki, Spákonuhofi á Skagaströnd, Sjálfstæðissalnum á Blönduósi og Hlöðunni Kaffihúsi á Hvammstanga. Fundirnir eru fyrir allar áhugasamar konur og hefjast kl. 17:00.
Virkja Norðvestur-konur er félagsskapur þar sem allar konur á Norðurlandi vestra eru velkomnar óháð stöðu eða aldri. Markmið félagsins er að sameina krafta kvenna á svæðinu til þess að hvetja konur til áræðni, frumkvöðlastarfs og samfélags- og stjórnmálaþátttöku og síðast en ekki síst hafa gaman af félagsskap hverrar annarar.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu félagsins.