Kynningarfundir um hitaveitu í Skagaströnd
RARIK ohf mun halda tvo kynningarfundi um fyrirhugaða hitaveitu til Skagastrandar miðvikudaginn 1. febrúar nk., þann fyrri í Skagabúð og þann seinni í Fellsborg á Skagaströnd.
Fundurinn í Skagabúð hefst kl. 13.00 en þar verður einkum verður fjallað um þann þátt framkvæmda er snýr að íbúum í dreifbýli. Til fundarins eru sérstaklega boðaðir íbúar í Skagabyggð auk þeirra íbúa Blönduóss sem búa í dreifbýlinu norðan Blönduóss.
Fundurinn í Fellsborg hefst kl. 17:30 en á þeim fundi verður fjallað um þann þátt framkvæmda er snýr að íbúum í þéttbýlinu á Skagaströnd.
Á þessum kynningarfundum munu talsmenn RARIK gera grein fyrir verkefninu og svara fyrirspurnum um einstaka þætti þess.