Kynningarfundir um leiðsögunám á Norðurlandi vestra
„Nú verður gerð ný atlaga að því að koma í gang námskeiði í svæðisleiðsögn fyrir Norðurland vestra, sem myndi byrja í janúar 2017,“ segir í frétt frá Farskólanum og SSNV. Á morgun, miðvikudaginn 23. nóvember, verða haldnir kynningarfundir um námið, sem hér segir:
Hvammstangi: kl. 9:00 í Selasetrinu á Hvammstanga.
Blönduós: kl. 12:00 í Ömmukaffi á Blönduósi.
Sauðárkrókur: kl. 16:00 í Farskólanum við Faxatorg.
Þar verða uppbygging og innihald námsins kynnt, ásamt því sem fulltrúar Farskólans gefa upplýsingar um styrkmöguleika úr starfsmenntasjóðum, sem nýtast fyrir þetta nám. „Vinsamlegast látið þetta berast til allra þeirra sem þið teljið að gætu haft áhuga,“ segir í tilkynningunni.