Kynningarfundir um niðurstöður á rannsóknarverkefnum

Þekkingarsetrið á Blönduósi og Farskólinn boða til kynningarfundar um niðurstöður á rannsóknaverkefnum sem unnin voru á síðasta ári. Um er að ræða verkefni um þarfagreiningu á námsframboði á Norðurlandi vestar og tilraunaverkefni um hækkað menntunarstig á Norðurlandi vestra.

Kynningarfundirnir eru öllum opnir og verða haldnir á eftirfarandi dögum:
Miðvikudaginn 5. mars kl. 20:00 í húsnæði Rannsóknaseturs HÍ á Skagaströnd
Fimmtudaginn 6. mars kl. 20:00 í Kvennaskólanum á Blönduósi.

Fulltrúar Farskólans verða á fundinum til að kynna nám og námskeið og svara fyrirspurnum í tengslum við niðurstöður þarfagreininganna. Rannsóknirnar eru liður í eflingu menntunar og atvinnulífs á svæðinu og því er mikilvægt að sem flestir sjái sér fært að mæta.

Gert er áð fyrir að kynningin taki um það bil 45 mínútur og síðan verða umræður á eftir. Heitt verður á könnunni og eru allir velkomnir.

 

 

Fleiri fréttir