Lækkun jöfnunarsjóðs gerir Húnavatnshrepp erfitt fyrir
Húni segir frá því að fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps fyrir árið 2011 var samþykkt á fundi hreppsnefndar 28. desember síðastliðinn. Gert er ráð fyrir að 1,9 milljón króna tekjuafgangi af rekstri sveitarfélagsins. Heildar tekjur eru áætlaðar 305,7 milljónir króna og gjöld eru áætluð 296,3 milljónir króna. Afskriftir eru áætlaðar 5,8 milljónir króna og fjármagnsgjöld umfram fjármagnstekjur eru áætluð 1,7 milljón krónur.
Í greinargerð með fjárhagsáætlun Húnavatnshrepps kemur fram að frá árinu 2009 hafi rekstur sveitarfélagsins verið afar erfiður og mjög háður framlögum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Á síðasta ári námu framlög sjóðsins tæplega 121 milljón króna eða um 45% af skatttekjum sveitarfélagsins það ár. Samkvæmt áætlun Jöfnunarsjóðs fyrir yfirstandandi ár er gert ráð fyrir að framlög sjóðsins til Húnavatnshrepps verði um 86 milljónir króna og lækka því um 35 milljónir milli ára.
Fulltrúar A-lista lögðu fram tillögu um að afgreiðslu fjárhagsáætlunarinnar yrði frestað fram í janúar m.a. vegna skertra framlaga Jöfnunarsjóðs. Vilja fulltrúar A-lista að óskað verði eftir fundi með forsvarsmönnum sjóðsins þar sem farið verði yfir og leitað skýringa á fyrirhugaðri lækkun. Ef það sé niðurstaðan að framlög sjóðsins skerðast um 31% þurfi að fara miklu betur ofan í alla gjaldaliði áætlunarinnar og finna leiðir til sparnaðar.
Fulltrúar E-lista tóku undir það að óskað yrði eftir fundi með forsvarsmönnum Jöfnunarsjóðs þar sem farið yrði yfir lækkanir á framlögum til sveitarfélagsins. Þeir höfnuðu aftur á móti tillögu A-lista og töldu eðlilegt að ganga frá áætluninni fyrir áramót eins og lög gera ráð fyrir. Vegna óvissu um ýmsa þætti hennar töldu fulltrúar E-lista rétt að áætlunin verði endurskoðuð í apríl á þessu ári og á komandi hausti.
