Landsæfing á sjó í „rjómablíðu“
Sameiginleg björgunarsveitaræfing, sem fór fram á Húnaflóa síðastliðinn laugardag, gekk mjög vel fyrir sig í „rjómablíðu,“ eins og segir á heimasíðu Björgunarsveitarinnar Húnar.
Björgunarsveitirnar á norðurlandi vestra skipulögðu umrædda landsæfingu á sjó, undir forystu Björgunarsveitarinnar Strönd. Björgunarsveitarmenn komu víða að til að taka þátt í æfingunni, m.a. frá Fáskrúðsfirði og Eyrarbakka. Æfingin stóð yfir allan daginn, frá kl. 8-17 og að henni lokinni var öllum þátttakendum boðið til grillveislu í Félagsheimilinu Fellsborg.
Samkvæmt heimasíðu Björgunarsveitarinnar Strönd var allskyns tækjakostur notaður til æfinganna, má þar helst nefna björgunarskip, harðbotnabáta og slöngubáta en á annað hundrað fjölbreytt verkefni voru til úrlausnar, t.d. fluglínutækjaverkefni og köfunarverkefni.