Landsbankinn tekur upp næstu kynslóð í netöryggi

Í dag tekur Landsbankinn upp næstu kynslóð í netöryggi í netbanka einstaklinga. Nýja kerfið felur í sér meira öryggi, betri þjónustu og einfaldari aðgang. Landsbankinn er fyrsti bankinn á Norðurlöndum sem innleiðir þessa lausn en í heiminum öllum notast yfir 6.000 bankar við samsvarandi kerfi. Notendur einkabanka á þeirra vegum eru um 350 milljónir.

Augljósasta breytingin fyrir notendur er sú að við innskráningu og alla almenna notkun einkabanka þurfa viðskiptavinir Landsbankans ekki lengur á auðkennislyklinum að halda, segir í tilkynningu frá bankanum en í staðinn er komið kerfi sem ber saman aðgerðir og aðstæður notandans við sömu stærðir úr fortíð og biður um staðfestingu á auðkenni ef brugðið er út af hefðbundinni notkun. Að öllu jöfnu finnur viðskiptavinurinn ekki fyrir kerfinu.

Staðfestingin getur farið annars vegar fram með símtali eða með SMS-skilaboðum sem notandinn fær úr kerfinu, og hins vegar með svari við einni af þremur öryggisspurningum sem notandinn hefur sjálfur valið. Kerfið greinir upplýsingar þrjá mánuði aftur í tímann en þær eru ekki persónugreinanlegar.

Fleiri fréttir