Landslið Íslands í hestaíþróttum fullskipað
Nítján knapar skipa landsliðið í hestaíþróttum sem keppir fyrir Íslands hönd á heimsmeistaramótinu í Austurríki sem hefst 1. ágúst nk. Þrír heimsmeistarar frá HM 2009 eiga keppnisrétt á HM 2011 en þar á meðal er Króksarinn Jóhann Skúlason. Elvar Einarsson á Skörðugili var valinn í liðið af liðstjórum en hann varð Íslandsmeistari fyrir stuttu í 250 metra skeiði ásamt Kóngi frá Lækjarmóti. Helga Una Björnsdóttir frá Syðri-Reykjum í V-Húnavatnssýslu var valin kynbótaknapi með Smá frá Þúfu í 5v hryssum.
Landssamband hestamannafélaga er afar stolt af liðinu sem hefur á að skipa reyndum og sterkum knöpum og hestum og væntir mikils af því á keppnisvöllunum í St. Radegund í Austurríki í ágúst.
Landslið Íslands er þannig skipað:
- Íþróttaknapar
- Heimsmeistarar frá 2009:
Jóhann Rúnar Skúlason og Hnokki frá Fellskoti – T1 og V1
- Bergþór Eggertsson og Lotus van Aldenghoor – 250m, 100m og gæð.sk.
- Rúna Einarsdóttir-Zingsheim og Freyr von Nordsternhof – T2, F1, 100m og gæð.sk.
Fullorðnir valdir eftir lykli Landsliðsnefndar LH:
- Viðar Ingólfsson og Tumi frá Stóra-Hofi – T1 og V1
- Eyjólfur Þorsteinsson og Ósk frá Þingnesi – T2 og V1
- Árni Björn Pálsson og Aris frá Akureyri – T1, F1, 250m, 100m og gæð.sk.
- Hulda Gústafsdóttir og Kjuði frá Kirkjuferjuhjáleigu – T1 og V1
Ungmenni valin eftir lykli Landsliðsnefndar LH:
Hekla Katharina Kristinsdóttir og Gautrekur frá Torfastöðum – T1 og V1
Fullorðnir liðstjóravaldir:
- Haukur Tryggvason og Baltasar vom Freyelhof – T1, F1, 100m og gæð.sk.
- Elvar Einarsson og Kóngur frá Lækjarmóti – T1, F1, P1, P2 og PP2.
- Hinrik Bragason og Sigur frá Hólabaki – T1 og V1
Ungmenni liðstjóravalin:
- Agnes Hekla Árnadóttir og Vignir frá Selfossi – T1 og V1
- Arnar Bjarki Sigurðarson og Röskur frá Sunnuhvoli – T1 og V1
Kynbótaknapar og hross
- Vignir Jónasson og Gjöf frá Magnússkógum – 7v og eldri hryssur
- Erlingur Erlingsson og Rauðhetta frá Kommu – 6 v hryssur
- Helga Una Björnsdóttir og Smá frá Þúfu – 5v hryssur
- Jakob Svavar Sigurðsson og Glotti frá Sveinatungu – 7v og eldri stóðhestar
- Sigurður Matthíasson og Arnoddur frá Auðsholtshjáleigu – 6v stóðhestar
- Sigurður Óli Kristinsson og Feykir frá Háholti – 5v stóðhestar
Hestarnir munu fljúga út næstkomandi sunnudag og knapar munu svo mæta til Austurríkis fimmtudagsmorguninn 28. júlí.