Landsmönnum boðið í bíó - Brim og Duggholufólkið sýndar á Blönduósi
Í tilefni íslenskrar kvikmyndaviku sem hefst á morgun verða tvær myndir sýndar frítt í Félagsheimilinu á Blönduósi. Fimmtudaginn 21. mars verður kvikmyndin Brim sýnd kl 20:00 og sunnudaginn 23. mars verður það Duggholufólkið sem fer á tjaldið kl 15:00 og mun leikstjóri myndarinnar, Ari Kristjáns verða viðstaddur sýninguna.
Í tilefni af hækkun framlaga í Kvikmyndasjóð Íslands bjóða íslenskir kvikmyndagerðarmenn, í samstarfi við Kvikmyndamiðstöð Íslands og 18 sýningarstaði, landsmönnum í bíó helgina 21. – 24. mars. Fjölbreytt úrval íslenskra kvikmynda verður sýnt víðs vegar um land og í einhverjum tilfellum verða leikstjórar eða aðrir aðstandendur viðstaddir sýningar og svara spurningum að þeim loknum. Alls verða sýningar á 18 stöðum, þar af tveimur í Reykjavík – Háskólabíó og Bíó Paradís. Sýningarstaðir voru valdir í samráði við menningarfulltrúa hvers landshluta og eftir aðstöðu til sýninga. Frekari upplýsingar og dagskrá Íslenskrar kvikmyndahelgi má nálgast á heimasíðu Kvikmyndamiðstöðvar Íslands: www.kvikmyndamidstod.is
Allir eru hvattir til að láta þennan frábæra menningarviðburð ekki fram sér fara.