Landssamband sjálfstæðiskvenna fagnar lausnum Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðiskonur fagna efnahagstillögum  þingflokks Sjálfstæðisflokksins sem ganga út á að auka ráðstöfunartekjur heimilanna með lækkun skatta  og með sókn í atvinnulífinu.  

 

Sjálfstæðiskonur taka undir að mikilvægt sé að  hagur fjölskyldna sé  hafður í fyrirrúmi og nauðsynlegt sé að draga allar skattahækkanir sem ríkisstjórnin hefur lagt á síðan 2009 til baka á næstu tveimur árum. Jafnframt að virðisaukaskattur á barnaföt og nauðsynjarvörur tengdar barnauppeldi verði fært í neðra skattþrep sem er mikið hagsmunamál fyrir barnafjölskyldur.

Landssamband sjálfstæðiskvenna er sammála áherslu þingflokksins varðandi fjárfestingar og að nú þegar verði blásið til sóknar í atvinnulífinu til hagsmuna fyrir íslenskt samfélag.

/Fréttatilkynning

Fleiri fréttir