Landssamtök heimilanna hafa verið stofnuð
Samtökin eru sameiginlegur vettvangur félagasamtaka og er tilgangur þeirra að vinna að hagsmunum félagsmanna aðildarfélaga og –samtaka s.s. með bættum láns- og leigukjörum neytenda og bættum kaupmætti, lífs- og launakjörum. Samkvæmt tilkynningu frá samtökunum munu þau vinna að tilgangi sínum og markmiðum eftir öllum lögmætum leiðum og með réttmætum samtakamætti.
„Nú þegar hart er sótt að heimilum landsins og launafólki er full þörf að taka kjarabaráttu almennings fastari tökum. Landssamtök heimilanna munu leita til annarra félagasamtaka til að efla þessa baráttu frekar. Samtökin munu beita sér fyrir því að hagur heimilanna verði tekin með sterkari hætti inn í kjarabaráttu launafólks“, segir í tilkynningunni.
Í bráðabirgðastjórn til fyrsta aðalfundar sitja: Ragnar Þór Ingólfsson og er hann formaður, meðstjórnendur eru Andrea Jóhanna Ólafsdóttir og Þórður Björn Sigurðsson. Varamenn eru Gunnar Magnússon og Sigrún Viðarsdóttir.