Landssamtök landeigenda á Íslandi funda í Húnavatnssýslum

Landssamtök landeigenda boða til opinna funda um hagsmunamál landeigenda í dag, föstudaginn 19. október. Fundir verða í Sjálfstæðissalnum á Blönduósi kl. 13:30 og í Félagsheimilinu Ásbyrgi kl. 20:30.

Á heimasíðu samtakana kemur fram að þeir sem telja sig eiga eignarrétt á landi sem fjármálaráðherra gerir kröfu til sem þjóðlendu hafa mánuði til að lýsa kröfum sínum frammi fyrir óbyggðanefnd, eða til 7. janúar 2013.

Fjármálaráðherra gerði kröfur um þjóðlendur í Húnavatnssýslu vestan Blöndu ásamt Skaga (svæði 8) komu fram í júlí síðastliðnum. Kröfur ríkisins ná meðal annars til svokallaðs Almennings á Skagaheiði, Breiðabólsafréttar í Vestur-Húnavatnssýslu og Sauðadals í Austur-Húnavatnssýslu.

Fundarefni:

  • Örn Bergsson formaður Landsamtaka landeigenda fjallar um ýmis hagsmunamál landeigenda.
  • Lögfræðingarnir Ólafur Björnsson og Sigurður Jónsson fjalla um þjóðlendumál og kröfur ríkisins í landssvæði í Húnavatnssýslum.

Landeigendur sem og aðrir áhugasamir eru hvattir til að fjölmenna á fundinn.

 

Fleiri fréttir