Landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga í dag
Tuttugasta og níunda landsþing Sambands íslenskra sveitarfélaga hófst í Salnum í Kópavogi í dag 17. apríl. Þingið hefst með setningarávarpi Halldórs Halldórssonar formanns kl. 10:00.
Að þessu sinni er yfirskrift landsþingsins „Staldrað við og staðan metin“ en helstu umfjöllunarefni verða:
- svæðasamvinna sveitarfélaga,
- efling sveitarstjórnarstigsins,
- endurskoðun kosningalaga og
- staðan í viðræðum ríkis og sveitarfélaga um endurmat á þjónustu við fatlað fólk.
Dagskrá þingsins má sjá á vef sambandsins. Áformað er að þinginu ljúki um kl. 15:15 en að því loknu hefst ársfundur Lánasjóðs sveitarfélaga ohf. á sama stað.