Laus pláss í grunnþjálfun
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
17.12.2013
kl. 11.50
Á vef Háskólans á Hólum er vakin athygli á því að enn eru örfá pláss laus í grunnþjálfun, hjá Hólanemum nú eftir áramótin en Hólaskóli hefur um árabil átt gott samstarf við ræktendur um allt land, um að senda skólanum hross til tamningar og þjálfunar, sem 2. árs nemar við hestafræðideild annast undir handleiðslu reiðkennara skólans.
Í tamningaferli Háskólans á Hólum er grunnþjálfunin næsta skref á eftir frumtamningu og eru gerðar þær kröfur að trippin skulu vera vel reiðfær utan dyra og teymast vel með manni.
Til að tíminn nýtist sem best, þurfa þau einnig að vera orðin heyjuð, auk þess að koma járnuð og í nokkurri þjálfun.
Sjá nánar HÉR