Laus störf á Skagaströnd
VInnumálastofnun Greiðslustofa á Skagaströnd leitar eftir kraftmiklu og jákvæðu starfsfólki í liðsheild sína.
Fulltrúi – Símaver
Um er að ræða tímabundna stöðu fulltrúa í símaveri, þarf að geta byrjað sem fyrst.
Fulltrúi – Afgreiðsla umsókna
Um er að ræða stöðu fulltrúa til afleysinga frá 01.07.2013 – 13.01.2014.
Sérfræðingur
Um er að ræða stöðu sérfræðings til afleysinga í fæðingarorlofi frá 15.07.2013 – 01.02.2014.
Umsóknarfrestur er til 17. júní 2013.
Greiðslustofa á Skagaströnd er staðsett á Túnbraut 1 – 3 og er hlutverk hennar að sjá um greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir allt landið. Þar starfa nú á þriðja tug starfsmanna. Um er að ræða full störf og eru laun greidd samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Áhugasamir geta kynnt sér starfsemi Vinnumálastofnunar á heimasíðu hennar
Nánari upplýsingar um menntunar- og hæfniskröfur starfanna er að finna inni á Skagaströnd.is.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Jensína Lýðsdóttir, forstöðumaður Greiðslustofu á Skagaströnd í síma 582-4900. Umsóknir með upplýsingum um menntun og starfsferil sendist á netfangið jensina.lydsdottir@vmst.is