Laus störf hjá sýslumanninum á Blönduósi

Á Húnahorninu eru auglýstar lausar til umsóknar tvær stöður skrifstofumanna við embætti sýslumannsins á Blönduósi frá og með 1. september 2013. Önnur staðan er tímabundin til 31. ágúst 2014. Starfshlutfall er 100%. Umsóknarfrestur er til 29. júní 2013.

Hæfniskröfur:
Almenn menntun, frumkvæði og sjálfstæði, sveigjanleiki og jákvætt viðmót og hæfni í mannlegum samskiptum og góð tölvukunnátta.  Þekking á tekjubókhaldi ríkisins (TBR) og lögreglukerfinu (LÖKE) er kostur en ekki krafa.

Laun eru skv. kjarasamningi fjármálaráðherra og SFR.

Nánari upplýsingar veitir Erna Björg Jónmundsdóttir, ernabj@syslumenn.is, eða í síma 455-2621, milli kl. 8:30-15 virka daga. Umsóknir skulu sendar á netfangið ernabj@syslumenn.is. Ferilskrá sem inniheldur upplýsingar um umsækjanda, m.a. um menntun, fyrri störf og meðmælendur þarf að fylgja með. Umsóknarfrestur er til 29. júní 2013. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Athygli er vakin á því að umsóknin mun gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur  rennur út,  með vísan til 3. tl., 2.mgr. 2. gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, með síðari breytingum nr. 464/1996, sem settar eru skv.heimild í 2. mgr., 7. gr. laga nr. 70/1996 um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna.

Fleiri fréttir