Laust starf í félags- og skólaþjónustu A-Hún.
Liðveisla/ stuðningsfjölskylda/ leiguíbúð fyrir aldraða.
Félags- og skólaþjónusta A-Hún. auglýsir eftir ábyrgðarfullum einstaklingi til að sinna félagslegri liðveislu, vinnutími fer eftir samkomulagi. Með félagslegri liðveislu er átt við persónulegan stuðning og aðstoð sem miðar að aukinni félagslegri virkni og aukinni þátttöku í samfélaginu.
Jafnframt er auglýst eftir áhugasömum aðilum til að taka að sér að vera stuðningsfjölskylda. Um ræðir að barn komi inn á heimilið eina til tvær helgar í mánuði og verði hluti af daglegu lífi fjölskyldunnar.
Einnig er laus til umsóknar leiguíbúð fyrir aldraða í Hnitbjörg, Flúðabakka 4.
Á heimsíðunni felahun.is er hægt að nálgast eyðublöð og aðrar upplýsingar s.s. lög og reglugerðir.
Nánari upplýsingar í síma 455 4170. Glugginn segir frá þessu.