Laxasetur Íslands opnar á þjóðhátíðardaginn

Laxasetur Íslands verður opnað á þjóðhátíðardaginn, sunnudaginn 17. júní nk. „Allir eru velkomnir að koma og sjá lifandi laxfiska og skemmtilega og fræðandi sýningu,“ segir í auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans.

Laxasetur Íslands ehf. var stofnað þann 23. júní 2011 og eru hluthafar nú 28 einstaklingar, stofnanir og fyrirtæki. Samkvæmt auglýsingu er hægt að gerast hluthafi í félaginu til 23. júní 2012.

Laxasetur Íslands ehf. er til húsa að Efstubraut 1, Blönduósi og verður opið frá kl. 11 – 18 á sunnudag, en opnunartími í sumar verður frá kl. 10 - 18 alla daga.

Fleiri fréttir