Laxasetur opnað með glæsibrag

Það var fullt út úr dyrum á Laxasetri Íslands á Blönduósi í gær þegar setrið var formlega opnað með glæsibrag. Viðstaddir gátu skoðað sýningarsalinn, hlítt á fjölmörg erindi og skemmtiatriði og bragðað á gómsætum laxaréttum.

Valgarður Hilmarsson framkvæmdastjóri og Jón Aðalsteinn Sæbjörnsson stjórnarformaður Laxasetursins eiga öðrum fremur heiðurinn að tilurð þess. Þeir sögðu frá því hvernig hugmyndin kviknaði fyrst árið 2008 og varð smátt og smátt að veruleika, en þeir hófust handa við að koma safninu á laggirnar árið 2011.

Valgarður sagði marga hafa lagt verkefninu lið, hvort sem það hafi verið í verki eða með fjárhagslegum stuðningi, sem hvort tveggja hafi verið ómetanlegt. Einnig hafði hann orð á því að áhugasamir hafa enn tækifæri á því að gerast stofnfjáreigendur, en þeir eru nú 28 talsins.

Þær Kristín Arnþórsdóttir og Þuríður Helga Jónsdóttir menningarmiðlarar höfðu umsjón með hönnun setursins og sagði Kristín í samtali við Feyki að mikil áhersla hafi verið lögð á að gera það aðlaðandi fyrir börn. Þar er að finna barnahorn sem vakti auðsýnlega mikla lukku á meðal yngri kynslóðarinnar við opnunina.

Laxasetrið er til húsa að Efstubraut 1 á Blönduósi, við þjóðvegi 1 þegar keyrt er í gegnum bæinn á leið til Akureyrar. Safnið verður svo opið almenningi í dag frá kl. 13-18, og svo áfram í sumar kl. 10-18.

Hér má sjá myndir frá opnunarteitinu.
.

 

 

Fleiri fréttir