Laxveiðifréttir héðan og þaðan
Laxveiði er nú hafin í öllum helstu laxveiðiánum í Húnavatnssýslum en árnar hafa verið að opna eina af annarri þennan mánuðinn. Laxá á Ásum opnaði í síðustu viku og fer ágætlega af stað. Blanda er kominn á fullan snúning og veiðast þar nú á bilinu 20-30 laxar á dag. Mikið mun vera af laxi í Víðidalsá og Miðfjarðará.
Laxá á Ásum
Veiði hófst í vikunni í Laxá á Ásum og á föstudagsmorgun voru komnir átta laxar á land og almennt talið að talsvert væri að ganga af laxi í ána. Hann er allavega bærilega dreifður, því menn voru að setja í laxa í Mánafossi á föstudagsmorguninn, að því er fram kemur á veiðivefnum Vötn og veiði.
Þar segir að Jón Eyfjörð hafi verið á bökkum árinnar á föstudaginn og kíkti á ósasvæðið um nóttina. „Það var mikið af bleikju og laxi á horninu neðan við Hjaltabakkahólmann í nótt, en tók mjög illa. Ég kastaði um stund og náði fimm birtingum, en þeir voru frekar smáir. Menn voru síðan að skoða ána ofar með morgninum og það var lax víða. Um hádegið var búið að skrá átta laxa,“ sagði Jón.
Blanda
Veiðin í Blöndu gengur vel og síðustu daga hafa veiðst á bilinu 20 til 30 laxar á dag. Nú hafa öll svæðin fjögur verið opnuð. Eins og venjulega gefur svæði I best í byrjun tímabils en síðan þegar líður á og laxagöngurnar verða fleiri þá dreifist laxinn um alla ána. Aðstæður í Blöndu eru nú orðnar miklu betri en fyrstu daga veiðitímabilsins. Heildar veiði fer nú að nálgast 200 laxa.
Víðidalsá
Opnunarhollið lauk veiði í Víðidalsá um hádegi á fimmtudaginn. Alls veiddust 16 laxar og álíka margir héldust ekki á agninu og sluppu. Að sögn kunnugra er töluvert af laxi um ánna og hafa laxar veiðst á öllum svæðum hennar. Mikið mun vera af laxi í Fitjá en þar hefur veiðimönnum gengið illa að ná að landa fiski. Allir laxarnir sem hafa veiðst eru á bilinu 80-90 cm langir og er einn hængur 94 cm
Vatnsdalsá
Alls hafa veiðst að meðaltali fjórir laxar á dag í Vatnsdalsá frá opnun og er heildarfjöldi veiddra laxa kominn í 37. Veiðimenn hafa kvartað undan lélegu veiðiveðri þar sem hitinn hefur farið upp í 22 gráður inni í Vatnsdal og himinninn verið heiður.
Miðfjarðará
Alls hafa 43 laxar veiðst í Miðfjarðará en hún opnaði á föstudaginn fyrir viku síðan. Þar er veitt á sex stangir. Skilyrði hafa verið veiðimönnum erfið, stífur vindur og sól. Þeir laxar sem hafa veiðst hafa flestir verið stórir eða á bilinu 80-96 sentímetrar að lengd.
Hallá
Veiði hófst í Hallá í vikunni og hafa nokkrir laxar veiðst nú þegar. Nóg vatn er í ánni og aðstæður því góðar.
Húni.is segir frá þessu.