Leggur fram vantrausttillögu á ríkisstjórnina
Þór Saari lagði fram tillögu í dag til þingsályktunar um vantraust á Ríkisstjórn Íslands og segir hann að tillagan útskýri sig sjálf. Hann hefur jafnframt óskað eftir því við forseta Alþingis að tillagan verði tekin á dagskrá þingsins þriðjudaginn 26. febrúar og verður það gert.
Tillaga Þórs Saari til þingsályktunar um vantraust á ríkisstjórnina, þingrof og nýjar kosningar hljóðar á þá leið að Alþingi lýsi þeim vilja sínum að þing verði rofið eigi síðar en 28. febrúar nk. og efnt til almennra þingkosninga 13. apríl 2013. Fram að kjördegi sitji starfsstjórn skipuð fulltrúum allra flokka á þingi.
Í greinargerð segir að vantrauststillaga beinist gegn ríkisstjórninni þar sem hún getur ekki afgreitt frumvarp til stjórnarskipunarlaga byggt á þeim drögum sem samþykkt var að leggja til grundvallar nýrri stjórnarskrá og samþykkt voru með yfirgnæfandi meiri hluta í þjóðaratkvæðagreiðslu 20. október 2012.
„Lýðræðisumbætur sem lofað var í aðdraganda kosninga hafa ekki séð dagsins ljós og enn er við lýði ójafn kosningarréttur eftir landshlutum, ójafnrétti í fjármálum stjórnmálaflokka og skortur á persónukjöri og beinu lýðræði. Með hliðsjón af því grundvallaratriði í lýðræðisríkjum að allt vald komi frá þjóðinni virðist ríkisstjórnin ganga í berhögg við augljósan vilja þjóðarinnar um nýja stjórnarskrá.
Slíkri ríkisstjórn er eðli málsins samkvæmt ekki stætt að vera við völd. Lagt er til að fram að kjördegi sitji starfsstjórn skipuð fulltrúum allra flokka á þingi í stað þess að fráfarandi stjórn sitji sem starfsstjórn fram að þeim tíma. Með því eru meiri líkur á að sátt náist um mál sem varða hagsmuni þjóðarinnar.“