Leggur til samkeppni um sprotafyrirtæki
Á síðasta sveitarstjórnarfundi sveitarfélagsins Skagastrandar lagði sveitarstjórnarfulltrúinn Jón Ólafur Sigurjónsson fram bókun þar sem hann lýsti yfir áhyggjum sínum af einhæfni í atvinnulífi á staðnum og gerði tillögur um úrbætur þar á.
Bókun Jóns Ólafs hljóðaði svo:
"Í ljósi þess að atvinnuframboð á Skagaströnd er með einhæfasta móti og fá störf í boði fyrir t.d. háskólamenntað fólk tel ég nauðsynlegt að Sveitarfélagið Skagaströnd komi að uppbyggingu aukins atvinnulífs á staðnum með einum eða öðrum hætti. Mín hugmynd er sú að efnt verði til samkeppni um sprotafyrirtæki á Skagaströnd. Reglur keppninnar yður nánar útfærðar í samráði við fagaðila en grunnreglurnar yrðu þannig að fyrirtækið yrði staðsett á Skagaströnd og í eigu heimamanns/manna. Einnig tel ég brýnt að halda áfram því starfi að kynna Skagaströnd sem ákjósanlegan stað til þess að hefja fyrirtækjarekstur á."