Leikfimi á Skagaströnd

Þann 4. september fara af stað leikfimistímar í íþróttahúsi Skagastrandar sem byggist á zumba, jóga, pilates og circuit training. Leiðbeinendur eru Andrea og Halla Karen.

Leikfimistímarnir verða á haldnir þrisvar í viku; þriðjudögum frá kl. 18 – 19, miðvikudögum frá kl. 19 – 20 og fimmtudögum frá kl. 17 – 18. Þátttakendur er vinsamlegast beðnir um að mæta  15 mín. fyrr í fyrsta tímann þann 4. september.

Verð fyrir 21 skipti, frá 4. september til 21. október eru 20 þúsund krónur. Greiða þarf fyrir námskeiðið fyrir 6. september.

Fleiri fréttir