Leikgerðu Laxdælu

Fulltrúar frá sjónvarpsstöðinni N4 heimsóttu Blönduskóla á mánudaginn. Tilefnið var verkefni nemenda í unglingadeild um Laxdælasögu. Eftir að hafa lesið Íslendingasögu hafa nemendur í unglingadeild leikgert umrædda sögu. Er þetta hluti af íslensku- og enskukennslunni, undir stjórn Magdalenu Berglindar og Önnu Margrétar, og hafa nemendur tekið þessu verkefni fagnandi.

Þarna fá þeir nokkuð frjálsar hendur um verkefnaskil og margir hverjir blómstra í vinnu sem þessari. Mörg verkefnanna hafa verið alveg stórgóð og vakið verðskuldaða athygli, eins og segir í frétt á vef Blönduskóla.

Hér má sjá hluta úr þættinum á N4.

Hér má svo sjá stuttmynd um Kjartan Ólafsson og félaga í Laxdælu, í fullri lengd.

Fleiri fréttir