Leikskólaliða- og stuðningsfulltrúabrú

Farskólinn-Miðstöð símenntunar á Norðurland vestra, í samstarfi við Símey- Símenntunarmiðstöð Eyjafjarðar, mun í vetur bjóða upp á nám fyrir ófaglært fólk í leikskólum og grunnskólum sem vill auka færni sína.

Námsmenn þurfa að vera orðnir 22 ára og hafa að baki að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu af störfum úr leik- eða grunnskóla við uppeldi, umönnun og menntun barna. Námsmenn sem ljúka leikskólaliða- eða stuðningsfulltrúabrú hljóta starfsheitin leikskólaliði og stuðningsfulltrúi.

Námið er fjórar annir og samsvarar um 50 einingum á framhaldsskólastigi. Námsmat er byggt á símati og verkefnavinnu og kennt verður í Farskólanum við Faxatorg og námsverum á Norðurlandi vestra. Kennt verður á fimmtudögum og tvo föstudaga, frá kl. 17 til 21. Námið hefst á staðarlotu á Sauðárkróki 4.-5. september.

Nánari upplýsingar um námið fást hjá Farskólanum í síma 455 6010 og vakin er athygli á því að hægt er að sækja um styrki til námsins til viðkomandi stéttarfélags.

Fleiri fréttir