Leikskólar í Húnavatnssýslum og Strandabyggð héldu sameiginlegan starfsdag

Frá starfsdegi leikskólanna í Húnavatnssýslum og Strandabyggð. Aðsend mynd.
Frá starfsdegi leikskólanna í Húnavatnssýslum og Strandabyggð. Aðsend mynd.

Sameiginlegur starfsdagur leikskólanna í Húnavatnssýslum og Strandabyggð var haldinn í Húnavallaskóla föstudaginn 11. október. Starfsdagurinn markar upphaf að þróunarverkefni skólanna „Færni til framtíðar“. Í upphafi verkefnisins er áhersla lögð á að kynna hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði fyrir starfsfólki skólanna og hvernig hægt sé að nýta hana bæði í starfi og einkalífi. Markmiðið er að starfsfólk öðlist aukna færni í að vinna með mannlega hegðun og hafa áhrif á börn og nærumhverfi.

Jákvæð sálfræði (positive psychology) er vísindaleg nálgun sem hefur það markmið að efla rannsóknir á jákvæðum hliðum mannsins eins og styrkleikum, vellíðan og hamingju og finna leiðir til að efla líðan enn frekar. Á heimasíðu Húnavallaskóla segir að fengnir hafi verið fyrirlesarar sem lögðu áherslu á að kenna hvernig ná megi fram það besta hjá fólki og hvernig það hjálpar til í öllum samskiptum. 

Helga Marín Bergsteinsdóttir, MSc. í heilsuþjálfun og kennsluréttindum, diplómu í jákvæðri sálfræði, ACC markþjálfi og NLP ráðgjafi, flutti fyrirlesturinn „Þú ert það sem þú hugsar“. Þar fékk hún þátttakendur til að kynnast eigin styrkleikum og þeim fjársjóði sem býr innra með þeim. Einnig fengu þátttakendur að upplifa mátt hugans og hvernig virkja megi þann kraft til að byggja upp jákvæða sjálfsmynd og öflugt sjálfstraust.

Jón Halldórsson, íþróttakennari, lögreglumaður og vottaður ACC markþjálfi, flutti fyrirlesturinn „Jákvæð samskipti“. Hann fjallaði um það hvernig hægt er að auka færni í að skilja samstarfsfélagana, hvaðan þeir koma og hvernig þeirra „gildi“ móta daglega hegðun þeirra. Einnig fór hann yfir það hvernig byggja má upp jákvæða samskiptamenningu á vinnustað.

„Skemmtilegir og fræðandi fyrirlestrar þar sem jákvæðni og gleði ríkti,“ segir á hunavallaskoli.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir