Leitað að manni við Laugarbakka í nótt

Um klukkan eitt í nótt barst lögreglunni á Sauðárkróki tilkynning um að maður hafi látið sig hverfa úr gleðskap frá Hótel Laugarbakka og rokið út í myrkrið en óttast var um hann þar eð hann varilla klæddur. Á Mbl. segir að manninum hafi sinnast við fólk sem með honum var.

Maðurinn fannst um hálfsexleytið, sofandi í nágrenni hússins en Mbl.is segir að lögreglan hafði gert ráðstafanr um að fá aðstoð frá björgunarsveitum ef á þyrfti að halda. Fór því betur en á horfðist í fyrstu.

Fleiri fréttir