Leitað að umsjónaraðila fyrir Húnavökuna
Menningar- og fegrunarnefnd Blönduósbæjar hefur borist erindi frá Markvert ehf. þar sem fram kemur að fyrirtækið segir sig frá því að vera umsjónaraðili að Húnavökunni í ár. Nefndin þarf því að leita að nýjum aðila til að taka að sér umsjón Húnavökunnar, eins og greint er frá á vefnum huni.is.
Í mars síðastliðnum var gengið frá samningum þess efnis að Markvert ehf. sjái um undirbúning og framkvæmd Húnavöku 2013, líkt og fyrirtækið gerði í fyrra. En úr því verður ekki að þessu sinni og munu persónulegar ástæður liggja þar að baki.
Húnavaka er fjölskylduhátíð Austur-Húnvetninga og verður haldin þriðju helgina í júlí, nánar til tekið 19. - 22. júlí, og er ein af stærri árlegum bæjarhátíðum á Norðurlandi vestra.