Leitar aðstoðar til að láta draum sinn rætast
„Fatlaður ungur maður leitar að aðstoð til að láta draum sinn rætast!" Svona hefst tilkynning Blönduósingsins Rúnars Þórs Njálssonar um söfnun sem hann hefur hrundið af stað til þess að láta stærsta draum sinn rætast sem er að ferðast til Nýja-Sjálands. Rúnar Þór er mikill aðdáandi Hringadróttinssögu en myndirnar sem gerðar voru um söguna voru teknar upp á Nýja-Sjálandi eins og sagt er frá í frétt um söfnunina á vef Húnahornsins.
Rúnari Þór dreymir um að komast í sérstaka 14 daga skoðunarferð þar sem honum gefst tækifæri á að skoða landið, hitta fólkið á bakvið gerð myndanna og upplifa eins mikið og hann mögulega getur, eins og hann segir sjálfur frá á Húnahorninu.
Rúnar Þór Njálsson er 24 ára með CP fjórlömun og bundinn við hjólastól. Hann fæddist þremur mánuðum fyrir tímann og vó aðeins fjórar merkur eða um eitt kíló. Hann segir að það sér mjög erfitt að vera fatlaður og bundinn við hjólastól. Hann geti ekki gert margt sem hann vilji gera og á hverju degi horfi hann upp á fólk fara og gera hluti sem hann sjálfur vildi óska að hann gæti gert. En þá sé enn mikilvægara að gefast ekki upp og gera allt sem í hans valdi er til að láta drauma sína rætast. Og það sé hann einmitt að gera núna með þessari söfnun.