Lengingu Miðgarðs lýkur í lok maí

Lengingu Miðgarðs, harðviðarbryggju á Skagaströnd á að ljúka í lok maí, samkvæmt samningi. Áætlaður kostnaður er um 50 milljónir króna en í verkáætlun vantar lýsingu og malbikun ofan við hina nýju bryggju, sem samþykkt hefur verið að bæta við. Einnig hefur verið ákveðið að kaupa nýjan löndunarkrana á bryggjuna.

Þetta kemur fram í fundargerð hafnarnefndar frá 9. apríl sl. sem samþykkt var í sveitarstjórn þann 15. apríl sl. Í sömu fundargerð kemur fram að rekstrarniðurstaða hafnarsjóðs á síðasta ári var jákvæð um 36 milljónir og á árunum 2014-2017 er áætlað að hún verði jákvæð um 13-14 milljónir á ári.

Fleiri fréttir