Lentu í gjá á Kjalvegi

Í gær varð umferðaróhapp á Kjalvegi þegar bílaleigubíll skipaður fimm Kínverjum lenti ofan í gjá sem hafði myndast á veginum við Sandá. Þrjár konur í bílnum fundu fyrir minniháttar eymslum en eftir að hafa farið í læknisskoðun á Blönduósi fóru þær ásamt tveimur mönnum sem einnig voru í bílnum á gistiheimili þar sem hópurinn dvaldi í nótt. Frá þessu er sagt á Mbl.is.

Athygli vekur að vegurinn um Kjöl er lokaður. Þrátt fyrir það er haft eftir lögreglunni á Blönduósi á Mbl.is að engar merkingar séu á veginum sem gefi til kynna að vegurinn sé lokaður og gagnrýnir lögreglan Vegagerðina fyrir það.

Fólkið fór því í sakleysi sínu, með kort af Íslandi í farteskinu, í góðri trú um að vegurinn væri fær og opinn. Hefðu ekki tveir menn á fjórhjólum komið að hópnum við Sandá er alls óvíst hvernig hefði á endanum farið, en mennirnir gátu farið á stað þar sem símasamband var og hringt eftir aðstoð.

Fleiri fréttir