Lesið í prjón

Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi bíður alla velkomna á opnun sýningar Héléne Magnússon, Lesið í prjón, sem opnar í safninu sunnudaginn 2. júní. Hr. Luis Arreaga, sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og eiginkona hans frú Mary F. Kelsey opna sýninguna formlega kl 14:00.

Sýningin tengist úgáfu bókar Héléne „Icelandic Handknits“ í Bandaríkjunum en efni bókarinnar byggir á munum í safninu. Sýningin verður opin alla daga frá kl 10:00-17:00 til 31. ágúst 2013. Nánari upplýsingar er að finna á vef Héléne og vef Heimilisiðnaðarsafnsins.

Fleiri fréttir