Less is more
Nú eru útsöluslárnar að hverfa hægt og rólega úr búðunum og nýjar vörur fara að streyma inn, mér til mikillar ánægju. Við Íslendingar erum reyndar ekki alveg tilbúin í að kaupa vor og sumarvörur strax, þar sem allt er á kafi í snjó ennþá, en það eru einmitt vörurnar sem við förum að sjá í „nýjar vörur“ rekkunum á næstunni.
Til að gíra ykkur upp fyrir komandi sumar þá er spurning um að setja þetta hugtak ofarlega í hugann „less is more“. Því eftir að hafa skoðað hvað stærstu nöfnin í þessum bransa ætla að bjóða upp á þá verðum við að fara að safna kjark í okkur og það strax.