Lést á gjörgæsludeild Landspítalans

Skarphéðinn Andri Kristjánsson Barðsnes lést á gjörgæsludeild Landsspítalans á þriðja tímanum í dag eftir mikla baráttu, en hann slasaðist í bílslysi við Fornahvamm í Norðurárdal sunnudaginn 12. janúar. Unnusta hans, Anna Jóna Sigurbjörnsdóttir, lést í slysinu og var jarðsungin frá Sauðárkrókskirkju síðastliðinn laugardag.  

Skarphéðinn var ökumaður fólksbifreiðar sem lenti í árekstri við flutningabíl sem kom úr gagnstæðri átt. Hálka og skafrenningur var þegar slysið átti sér stað og rann fólksbíllinn í veg fyrir flutningabílinn.

Skarphéðinn var átján ára gamall, fæddur 1. mars 1995. Hann bjó á Sauðárkróki og stundaði nám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra.

Fleiri fréttir