Leynileg hjólabraut í Skógarhlíðinni

Fyrir skömmu varð vart við óvænta stígagerð í Skógarhlíðinni ofan Sauðárkrók en þar höfðu ungir og framtakssamir drengir græjað sér hjólabraut fyrir fjallahjólabrun. Nýttu þeir tilfallandi efni, sprek, greinar og jarðveg í nágrenninu og drógu timbur að, sem virðist vera pallaefni, í smíðina.
Eins og vænta mátti hafði leyfi ekki verið fengið fyrir framkvæmdinni og brautin tekin niður en að sögn Sigfúsar Inga Sigfússonar, sveitarstjóra gætu málin þó þróast í rétta átt.
„Garðyrkjustjóri varð vör við umræddar framkvæmdir sem ekki hefur verið veitt leyfi fyrir. Í kjölfarið áttum við fund með foreldri eins drengjanna og málið er í þeim farvegi að verið er að skoða þær þarfir sem svona aðstaða þarf að uppfylla. Ætlunin er að þróa málið áfram og kanna hvort ekki sé unnt að vinna sameiginlega að aðstöðu sem hentar,“ sagði Sigfús.
Hjólabrautin var ekki öllum kunn né sýnileg þar sem skógur þekur svæðið og náðu drengirnir að nýta sér hana vel áður en upp komst þar sem einhverjir þeirra hafa tekið þátt í hjólamótum á landsvísu og unnið til verðlauna. Það væri því gott fyrir framþróun íþróttarinnar að ný braut og vel hönnuð verði komin upp svo fljótt sem verða má.