Leysingjastaðir Ræktunarbú ársins 2013 í Austur-Húnavatnssýslu

Uppskeruhátíð húnvetnskra bænda og hestamanna var haldin þann 23. nóvember sl. og líkt og fyrri ár voru veitt verðlaun fyrir hesta, kýr og kindur. Knapi ársins 2013 hjá Hestamannafélaginu Neista er Jakob Víðir Kristjánsson. Á neisti.net segir að hann hafi gert það gott á keppnisvellinum, var með tvo efstu hestana í B-flokki gæðinga á félagsmóti Neista og úrtöku fyrir Fjórðungsmót, þá Gítar frá Stekkjardal og Börk frá Brekkukoti. Var með þrjá hesta í úrslitum í B-flokki á félagsmótinu. Hann var einnig í A-úrslitum í B-flokki gæðinga á Fákaflugi og í úrslitum í tölti og fjórgang á opnu íþróttamóti Þyts.

Að venju veittu Samtök Hrossabænda í A.-Hún ræktendum í félaginu viðurkenningar fyrir hæst dæmdu kynbótahrossin en í flokki fjögra vetra hryssa var það Telma frá Steinnesi sem fékk þau, Þórdís frá Skagaströnd í fimm vetra flokknum, Hvöt frá Blönduósi í sex vetra og Staka frá Steinnesi í flokki sjö vetra og eldri

Í flokki fjögra vetra stóðhesta stóð Besti frá Upphafi undir nafni og hlaut verðlaun, Hausti frá Kagaðarhóli í sex vetra og í flokki sjö vetra og eldri varð það Kompás frá Skagaströnd sem hlaut þann heiður.

Sölufélagsbikarinn fær  hæst dæmda hryssa á héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns og varð það Vigur frá Hofi sem hann hlaut en Búnaðarbankabikarinn hlýtur hæst dæmdi stóðhestur á héraðssýningu í Húnaþingi í eigu heimamanns og kom hann í hlut Hausta frá Kagaðarhóli.

Fengsbikarinn er bikar sem gefinn var til minningar um Guðmund Sigfússon frá Eiríksstöðum og veittur er hæst dæmda kynbótahrossi í eigu heimamanns en hann hlaut Kompás frá Skagaströnd.

Bikar til minningar um Magnús Blöndal frá Skagaströnd og gefinn af Sveini Inga Grímssyni og fjölskyldu er veittur hæst dæmda fjögra vetra stóðhesti úr Austur-Húnavatnssýslu. Að þessu sinni var það Besti frá Upphafi sem hlýtur þann heiður.

Þá var Leysingjastaðir í Húnavatnshreppi valið Ræktunarbú  ársins 2013 en ábúendur þar eru þau Hreinn Magnússon og Hjördís Jónsdóttir. Á heimasíðu Hestamannafélagsins Neista á Blönduósi segir að á árinu 2013 var glæsihesturinn Freyðir frá Leysingjastöðum áberandi, gerði það mjög gott á keppnisvellinum ásamt knapa sínum Ísólfi Líndal Þórissyni. Á Fjórðungsmóti á Kaldármelum unnu þeir B-flokki gæðinga með einkunnina  9,01. Ísólfur og Freyðir gerðu það líka gott á Íslandsmóti í Borgarnesi en þar urðu þeir í 5.-6. sæti í tölti með einkunnina 8,28  eftir að hafa unnið sig upp úr B-úrslitum. Þeir kepptu einnig í fjórgangi og urðu í 5. sæti með einkunnina 8,0. Hreinn og Hjördís hafa stundað hrossarækt í áratugi og mörg góð hross komið frá þeim, má þar meðal annars nefna Stíganda og Sindra Stígandason.

Sjá nánar á Neisti.net

Fleiri fréttir