Lið FNV í Gettu betur í kvöld

Í kvöld klukkan 20:00 keppir lið Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra við lið Flensborgarskólans í forkeppni spurningakeppni framhaldsskólanna Gettu betur á Akureyri. Viðureigninni verður útvarpað á Rás 2 og hvetur nemendafélag skólans alla til að hlusta og áhugasömum velkomið að koma til Akureyrar og styðja sitt lið.

Í liði FNV eru þau Árni Freyr Sigurðsson, Þórdís Þórarinsdóttir og Ísak Óli Traustason. Önnur lið sem mætast í kvöld eru lið Fjölbrautaskólans í  Ármúla gegn Menntaskólanum á Tröllaskaga kl. 19.30 og kl. 20.30 etja kappi lið Borgarholtsskóla og Verkmenntaskólans á Akureyri.

Umsjónarmaður er Elín Sveinsdóttir, spurningahöfundar og dómarar eru Atli Freyr Steinþórsson og Þórhildur Ólafsdóttir og spyrill er Edda Hermannsdóttir.

Fleiri fréttir