Lið Selfoss of gott fyrir Stólastúlkur
Kvennalið Tindastóls spilaði á Selfossi í gærkvöldi í 1. deildinni. Lið Selfoss er í toppbaráttunni í deildinni og hefur flakkað á milli efstu og næstefstu deilda síðustu árin. Það mátti því búast við erfiðum leik og sú varð raunin. Selfyssingar náðu snemma forystunni og Stólastúlkum gekk illa að ógna marki heimastúlkna. Lokatölur 4-0.
Það voru aðeins liðnar níu mínútur af leiknum þegar Alex Nicole Alugas gerði glæsimark fyrir Selfoss. Fékk boltann við bogann með bakið í markið, átti góða snertingu á boltann, snéri af sér varnarmann og dúndraði boltanum síðan yfir Önu Luciu í marki Tindastóls og rétt undir þverslána. Frábært mark og Ana enginn aukvisi eða stubbur í markinu. Staðan var 1-0 í leikhléi og heimastúlkur ógnandi í sínum sóknarleik.
Annað mark Selfoss kom á 51. mínútu en þá var Karítas Tómasdóttir á auðum sjó við markteig Tindastóls eftir hornspyrnu og skallaði af öryggi í markið. Kristrún Rut Antonsdóttir bætti við þriðja marki Selfoss á 59. mínútu með skalla af fjærstöng eftir hornspyrnu. Fjórða og síðasta mark leiksins gerði síðan Brynja Valgeirsdóttir með skoti af markteig og enn og aftur eftir hornspyrnu. Þar vildu Tindastólsstúlkur fá dæmda hendi en dómarann hafði enga þolinmæði fyrir því. Síðustu mínúturnar náði lið Tindastóls nokkrum ágætum sóknum en Chante Sandiford var vel vakandi í marki Selfoss.
Lið Tindastóls mætir Hömrunum á Sauðárkróksvelli næstkomandi þriðjudag kl. 18:00. Eins og sagt var frá í Feyki í gær spilaði Ólína Sif Einarsdóttir sinn síðasta leik á þessu tímabili með Stólunum gegn Selfossi en Eva Banton hafði þegar sagt skilið við liðið. Von er á erlendum leikmanni til að fylla skarð Ólínu.