Líf og fjör í Farskólanum

Það er ávallt mikið um að vera hjá Farskólanum, sem er miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra. Að sögn Halldórs Gunnlaugssonar verkefnastjóra þar er nú að fara af stað röð námskeiða sem ætluð eru ferðaþjónustuaðilum og frumkvöðlum. Námskeiðin verða öll í boði í Skagafirði, á Blönduósi og á Hvammstanga.

Að sögn Halldórs er komin næg þátttaka á þessa námskeiðaröð til að af henni verði, þó enn sé hægt að bæta við þátttakendum. Auk þess er skrifstofuskóli að fara af stað á næstu dögum og verður hann fjarkenndur á milli þéttbýlisstaða á landinu og er þátttakan orðin mjög góð.

„Við erum einnig að fara að bjóða upp á þrjú námskeið á þessum stöðum í samvinnu við stéttarfélögin Samstöðu, Kjöl og SFR. Þessi námskeið eru í boði fyrir alla, en félagsmenn þessara félaga fara í boði þeirra og greiða ekkert þátttökugjald. Þetta verða því níu námskeið ef við náum þeim öllum af stað,” sagði Halldór í samtali við Feyki.

Loks segir Halldór að verið sé að safna í hóp á íslenskunámskeið fyrir útlendinga og líti það vel út. „Svo eru að sjálfsögðu að tínast af stað eitt og eitt tómstundanámskeið,” sagði Halldór að lokum. Nánari upplýsingar um Farskólann og starfsemi hans má finna  á heimsíðunni farskolinn.is.

Fleiri fréttir