Lífsdans Geirmundar tókst vel - Myndband

Karlakór Bólstaðarhrepps ásamt Hljómsveit Skarphéðins H. Einarssonar á Blönduósi bauð upp á söngveislu, Lífsdans Geirmundar Valtýssonar, með fernum tónleikum. Fyrst var sungið í Blönduóskirkju þann 7. mars, Félagsheimilinu Hvammstanga þann 8. og loks í Skagafirði í gær 10. mars. Voru tónleikar bæði í frímúrarahúsinu um daginn og svo í Menningarhúsinu Miðgarði um kvöldið.

Ákveðið var á vordögum 2012 að setja upp söngdagsskrá með lögum Geirmundar og segir Þorleifur Ingvarsson formaður kórsins að lögin séu löngu orðin þjóðareign eftir langan og farsælan tónlistarferil Geirmundar. Sveinn Árnason, stjórnandi kórsins valdi lögin í samráði við Geirmund og Rögnvaldur Valbergsson organisti á Sauðárkróki, útsetti þau fyrir karlakór og hljómsveit.

Þá samdi Geirmundur nýtt lag fyrir þetta verkefni. Skarphéðinn H. Einarsson, tónlistarskólastjóri á Blönduósi setti saman hljómsveit fyrir dagskrána en hana skipa auk hans, Elvar Ingi Jóhannesson, Benedikt Blöndal, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Bryndís Halldórsdóttir, Hrafnhildur Björnsdóttir, Friðrik Brynjólfsson og Brynjar Óli Brynjólfsson.

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps ætlar að fara víðar með dagskrána því fyrirhugaðir eru tvennir tónleikar þann 13. apríl í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík og Allanum á Siglufirði.

Óhætt er að segja að lög Geirmundar hafi farið vel í tónleikagesti enda melódísk og mörg hver fjörug og hress. Voru þeir vel sóttir og fengu kórmenn góðar móttökur hvar sem þeir komu.

Hér fyrir neðan er stutt myndbrot frá tónleikunum í Miðgarði 10. mars 2013.

https://www.youtube.com/watch?v=UDy9qPynK5Q

Fleiri fréttir