Lífsdansinn á geisladisk - Myndband

Um þessar mundir standa yfir upptökur á söngdagskrá Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps, Lífsdansinn. Um er að ræða dagskrá sem kórinn flutti við góðar undirtektir síðastliðið vor. Reiknað er með að allt að átján lög verði á disknum, en lögin eru öll úr smiðju Geirmundar Valtýssonar og því vel við hæfi að diskurinn komi út á 70 ára afmælisári hans.

Félagar í kórnum eru alls 35, þar af sjö úr Skagafirði en aðrir kórfélagar eru úr Austur-Húnavatnssýslu. Kórinn kemur saman einu sinni í viku, tvisvar þegar eitthvað sérstakt er framundan, „og það er nú nærri því alltaf,“ eins og Þorleifur Einarsson formaður kórsins sagði í spjalli við blaðamann þegar litið var inn í Húnaver á mnudagskvöldið í síðustu viku. Söngstjóri kórsins er Sveinn Árnason, en hann hafði nýlega brugðið sér í frí þegar meðfylgjandi myndband var tekið og hljóp Skarphéðinn Einarsson, skólastjóri Tónlistarskólans á Blönduósi, í skarðið.

Það er Rögnvaldur Valbergsson á Sauðárkróki sem stjórnar upptökum. Upptökurnar eru þolinmæðisvinna, hvert lag er tekið upp nokkrum sinnum og síðan er undirleikurinn tekinn upp sér. Reiknað er með að upptökur standi út mars og diskurinn verði kominn í sölu næsta haust, alla vega eigi síðar en fyrir næstu jól.

http://youtu.be/dsfvrjqYvVM

Á næsta ári verður kórinn 90 ára og þá stendur til að setja upp dagskrá með lögum sem tengjast kórfélögum og söngstjóranum, Sveini Árnasyni, sem starfað hefur með þeim sl. 20 ár. Afmæli kórsins miðast við sumardaginn fyrsta, en þann dag árið 1915 kom hann fyrst fram opinberlega í Bólstaðarhlíð.

 

Fleiri fréttir