Lionsklúbbur Blönduóss styrkir verkefni í heimabyggð
Lionsklúbbur Blönduóss afhenti nokkrar styrki til aðila innan héraðs á dögunum en klúbburinn hefur verið ötull í rúmlega 5 áratugi að styðja við bakið á hinum ýmsu verkefnum í Austur Húnavatnssýslu, segir á Húna.is.
Styrkþegar að þessu sinni voru Laxasetur Íslands, Vatnsdæla á refli og Hollvinasamtök Heilbrigðisstofnunarinnar á Blönduósi, sem hlutu styrki samtals að andvirði 620.000,- kr.
Fulltrúum þeirra var boðið í kaffisamsæti af þessu tilefni, ásamt stjórn klúbbsins og fjáröflunar- og allsherjarnefnd á kaffihúsið Við Árbakkann.
Aðal fjáröflun klúbbsins er samkvæmt Húna perusala og Sviðamessa á haustin og blómasala um jól.