Listamannaspjall og jólagleði
Nes listamiðstöð á Skagaströnd býður til tveggja viðburða í vikunni, annars vegar listamannaspjall miðvikudaginn 5. desember og hins vegar potluck og jólagleði föstudaginn 7. desember.
Listamannaspjallið fer fram í húsnæði Rannsóknarseturs HÍ á Norðurlandi vestra, á 2. hæð í gamla Kaupfélagshúsinu, fyrir ofan skrifstofur BioPol. Samkvæmt fréttatilkynningu mun hver listamaður sem nú dvelur við listamiðstöðina segja frá sjálfum sér og listsköpun sinni á 3,5 mín. og jafnvel bæta við einhverju um hvað hann er að gera á Skagaströnd. Spjallið hefst kl. 17 og stendur til kl. 18.
Föstudagskvöldið hefst með Potluck kl. 18:30 en þá koma gestir með mat og leggja til á sameiginlegt hlaðborð og allir snæða saman kvöldverð. Að máltíð lokinni verður haldin jóla- og áramótagleði.
Listamenn desembermánaðar:
- Heather Lougheed Canada
- Andrea Clinton USA Http://andreaclinton.blogspot.com
- Alex Smith Britain www.alegsmeeth.com
- Devlin Shea Sweden / USA www.devlinshea.com
- Katarin Laruelle Quebec
- Aja Pecknold USA www.unifiedfieldcollective.com
- Lisa Anderson Australia www.lisaanderson.com.au
- Jane Smith Australia
- Clint Wilson Canada
- Erica Mott USA www.ericamott.com
- Anna Rosa Hiort-Lorenzen Denmark